Námsráðgjöf í Grunnskóla Vestmannaeyja

Heimasíða Helgu Tryggva, náms– og starfsfráðgjafa.

Hver vill ekki læra meira á minni tíma?

Markmið námstækni er að:

LÆRA MEIRA Á MINNI TÍMA !

Námstækni er ekki meðfætt fyrirbæri heldur lærð hegðun sem hægt er að breyta, bæði til verri og betri vegar. Sá sem býr yfir góðri námstækni er í raun að fara styðstu leiðirnar að markmiðinu, þ.e. að kunna og skilja hlutina.

Góð námstækni felst í því að nota árangursríkustu aðferðirnar við námið.

· Almennt skipulag í námi –nokkrir punktar þar sem farið er lauslega yfir þætti sem þurfa að vera í lagi, s.s. lífvenjur, skipulag á náminu heima og í skólanum. Einnig fylgir tékklisti sem hægt er að prenta út.

· Markmið – til þess að komast á áfangastað þarf áætlun.

· Áhugi í námi - hvernig auka má áhuga á námi. Jákvæður hringur áhuga og neikvæður hringur áhuga.

· Að vinna upp – það er allt hægt ef skynsemin er fyrir hendi.

· Gildi upprifjunar – af hverju upprifjun er mikilvæg í námi.

· Hugkort – tækni sem er einstaklega árangursrík í námi og ýmsu öðru.

· Vikuáætlun – sérstaklega fyrir þá sem hafa mikið að gera. Hægt er að prenta síðna út og breyta námsgreinum. Þeim sem ætla sér að nýta þessa aðferð er bent á að hafa samband við námsráðgjafa, til þess að fara vandlega yfir námsvenjur og setja undirmarkmið út frá þeirri vinnu.

· Skipulag á námi fram að prófum – hentugar aðferðir til að fá yfirsýn yfir námið og hvað þarf að gera.

· Þátttaka foreldra í heimanámi – miðar að sjálfstæði nemenda í námi.

· Lestraraðferð –aðferð sem miðar að því að við höldum einbeitingu og munum það sem við vorum að lesa, nýtilegt í öllum námsgreinum. T.d. auðvelt að aðlaga að stærðfræðinámi.

Allir sem eru í námi, sama   á hvaða skólastigi, geta notfært sér ráðin hér til hliðar.

Hamarsskóli 481-2644

Barnaskóli 481-1944

Netfang: helga@vestmannaeyjar.is

Hafðu samband:

Lært fyrir próf - námstækni