|
Námsráðgjöf í Grunnskóla Vestmannaeyja |
|
Heimasíða Helgu Tryggva, náms– og starfsfráðgjafa. |

|
Til þess að komast inn á tilteknar brautir í framhaldsskólunum þarf að uppfylla tiltekin inntökuskilyrði. Allir komast í framhaldsskóla, en þeir sem ná ekki inntökuskilyrðum gætu orðið lengur að ljúka námi en hinir. Það mikilvæga að hafa í huga er að ábyrgð nemenda á vali á námsgreinum og samræmdum prófum í grunnskóla og braut í framhaldsskóla hefur aukist. |
|
Inntökuskilyrði á brautir framhaldsskólanna felast í viðmiðunareinkunn sem er meðaltal skólaeinkunnar og einkunnar á samræmdu prófi. Viðmiðunareinkunnirnar eru tvær, 5 og 6. Þegar viðmiðunareinkunin er 5 er lágmarkið í samræmdu prófunum í 10. bekk 4,5 og þar sem hún er 6 er lágmarkið í samræmdu prófunum 5.
Þ.e. ef viðmiðunareinkunin er 6, ég fæ 5 í einkunn í samræmdu prófi þá þarf ég að ná 7 í skólaeinkunn til að ná 6 í viðmiðunareinkun (5+7/2=6). Ef ég aftur á móti tek ekki samræmt próf í greininni og fæ 7 í skólaeinkunn þá er viðmiðunareinkunin mín 3,5 (0+7/2=3,5). |
|
Hamarsskóli 481-2644 Barnaskóli 481-1944 Netfang: helga@vestmannaeyjar.is |
|
Hafðu samband: |
Inntökuskilyrði á brautir framhaldsskóla. |
|
Svörtu tölurnar eru viðmiðunareinkunnir . Rauðu skáletruðu tölurnar eru lágmörk í samræmdum prófum. |