Námsráðgjöf í Grunnskóla Vestmannaeyja

Heimasíða Helgu Tryggva, náms– og starfsfráðgjafa.

Hér er leitast við að útskýra samhengið milli vals nemenda á námsgreinum í 9. og 10. bekk, vals á samræmdum prófum og inntökuskilyrða á brautir framhaldsskólanna.

 

Í síðustu útgáfu Aðalnámskrár fyrir grunnskóla komu fram breytingar er varða nemendur í efstu bekkjum grunnskólans. Í almennum hluta Aðalnámskrár segir m.a:

· “Það er afar mikilvægt að nemendum sé ljóst strax í 9. bekk hvað tekur við að loknum grunnskóla til þess að þeir geti nýtt sér valkosti sem bjóðast í 9. og 10. bekk.”

· Nemendur leggja áherslur í náminu í samræmi við  framtíðaráform sín.

· Með auknu vali er stuðlað að því að nemendur taki meiri ábyrgð á námi sínu.

· Hægt að ljúka grunnskóla með mismunandi áherslum.

· Samræmd próf í 10. bekk eru 6 talsins og eru valfrjáls.

· Skólar skipuleggja 30% námstímans í 9. og 10. bekk, t.d. sem svið og frjálst val.

· Tilgangurinn að laga námið að þörfum hvers og eins.

· Nemendur velja sig að og frá greinum eftir áhuga og framtíðaráformum.

· Intak valnáms í 9. og 10. bekk:

· Undirbúningur að bóknámi

· Undirbúningur að starfsmennta-, lista eða tækninámi

· Viðfangsefni sem stuðla að víkkun sjóndeildarhringsins og stuðla að lífsfyllingu

Hamarsskóli 481-2644

Barnaskóli 481-1944

Netfang: helga@vestmannaeyjar.is

Hafðu samband:

Val á unglingastigi

Mikil vinna hefur farið í að laga námið á unglingastigi í grunnskólum Vestmannaeyja að ofangreindu þar sem tillit hefur einnig verið tekið til þarfa unglinga í Vestmannaeyjum og bolmagni skólanna við skipulag og framboð á valgreinum. Í dag er staðan þannig að nemendur velja hluta námsgreina alveg frjálst. Þeir geta valið samkvæmt áhuga og framtíðaráformum.

Með breytingu á reglugerð um samræmd próf er 9. bekkingum sem þreyta samræmd próf gefinn kostur á að taka prófin aftur ef þeir eru ekki ánægðir með árangur sinn. Rétt er að taka fram að ákvörðun um töku samræmdra prófa í 9. bekk er á valdi kennara og skólastjórnar.

Við erum í góðu samstarfi við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum og hafa stundatöflur í kjarnagreinum í 10. bekk og 103 eininga áföngum í FÍV verið samræmdar. Þetta þýðir að 10. bekkingar sem taka samræmd próf ári fyrr en venjulega eiga auðvelt með að sameina námið í Grunnskólanum og áfanga í FÍV.