|
Námsráðgjöf í Grunnskóla Vestmannaeyja |
|
Heimasíða Helgu Tryggva, náms– og starfsfráðgjafa. |

|
Hafðu samband: |
|
Hamarsskóli 481-2644 Barnaskóli 481-1944 Netfang: helga@vestmannaeyjar.is |
|
Svefn. 13-15 ára unglingar þurfa samfelldan 9-10 klst. svefn á sólarhring. Miklu skiptir að svefnin verði samfelldur og stöðugur, þ.e. farið að sofa á sama tíma alla daga vikunnar og vaknað á sama tíma alla daga vikunnar. Mataræði. Borðaðu hollt og reglulega. Morgunmatur er ein af forsendum þess að þú getir sinnt náminu á morgnanna.
Hafðu allt skóladót á sama stað. Námsgögn þarf að hafa á ákveðnum stað. Allt á sama stað; skúffa, hilla eða box, sem eingöngu er fyrir skóladótið. Lærðu heima á sama stað. Æskilegt er að læra þar sem er minnst truflun, inni í herbergi ef það er hægt. Hafðu ákveðinn tíma fyrir heimanámið. Góð regla er að læra heima strax eftir skóla, en þegar því er ekki komið við að vera þá búin(n) að öllu fyrir kvöldmat. Huga þarf að stærri verkefnum í tíma og byrja tímanlega. Auktu við tíma sem fer í heimanám. Með því að bæta við tíma sem notaður er í heimanám er hægt að bæta árangur sinn verulega. Í viðbótartímanum er hægt að rifja upp það sem gert var um morguninn, rifja upp það sem lært var heima þann daginn. Sem sagt festa námsefnið í minninu. Auk þess er hægt að einbeita sér að því að læra eitthvað sem maður hefur átt erfitt með að skilja. Að læra eða að LÆRA. Það er munur á því að læra með því að setja punktinn á eftir verkefninu eða læra til þess að kunna námsefnið virkilega vel. Ekki vera að gera neitt annað en læra þegar þú átt að vera að læra. Settu í skólatöskuna daginn áður. Þannig geturðu verið viss um að vera ekki bókarlaus. Hafðu líka tilbúin íþróttaföt og annað sem þarf.
Nýttu tímann vel í skólanum. Nemendur nota miklu meiri tíma við námið í skólanum en við heimanám. Þess vegna skiptir öllu hvort þú ert að fylgjast með og vinna í kennslustundum Dagbókin. Með því að hafa alltaf dagbókina í töskunni og skrifa alltaf niður það sem á að læra heima ertu að koma í veg fyirr óþarfa vesen. Hafðu möppu í töskunni fyrir laus blöð. Mappa með skiptiblöðum þar sem hver námsgrein hefur sitt svæði, settu í möppuna jafn óðum. Vertu með allt sem til þarf. Vertu viss um að hafa alltaf með reiknivél og fleiri aðstoðarhluti sem þarf að nota. Auk þess að hafa allt sem þarf í pennaveskinu. |
|
Það sem skiptir mestu er að þú komir þér upp námsvenjum sem auðvelda þér að ná þínum besta árangri. |
Almennt skipulag í námi |
Lífsvenjur |

Skipulagið í skólanum |
Skipulagið heima |