|
Námsráðgjöf í Grunnskóla Vestmannaeyja |
|
Heimasíða Helgu Tryggva, náms– og starfsfráðgjafa. |

|
Hafðu samband: |
|
Hamarsskóli 481-2644 Barnaskóli 481-1944 Netfang: helga@vestmannaeyjar.is |
Gildi upprifjunar
|
|
Við eigum það til að treysta of blint á minnið, en það getur verið auðvelt að sjá hversu ófullkomið minnið er þegar fólk sem verður vitni að sama atburði rifjar hann upp. Þá verða útgáfurnar æði ólíkar. Við erum líka oft fljót að gleyma. Minnið má þó þjálfa meðvitað og til eru ótal aðferðir til þess að muna allskyns upplýsingar.
Myndir hér að ofan er dæmi um gleymsku. Þarna er gert ráð fyrir því að manneskja lesi nýtt efni í eina klukkustund. Strax að loknum lestri man hún u.þ.b. 75% af efninu. Seinna sama dag hækkar prósentan þar sem viðkomandi er að tengja nýja efnið við eitthvað sem hún vissi áður, er að spá og spekúlera. Síðan er gert ráð fyrir því að viðkomandi vinni ekkert með efnið framar, hugsi ekki um það, lesi það ekki aftur og heyri ekkert um það. Þá stefnir gleymskukúrfan hraðbyri niður á við og eftir 2-3 mánuði er á milli 92 og 98% efnisins gleymt! En ekki örvænta, þetta er ýkt dæmi en sýnir þó mikilvægi þess hvaða aðferðum við beitum í námi. Þá erum við komin að gildi upprifjunar.
Á myndinni eru reglulegar upprifjanir, innan sólarhrings (ákaflega mikilvægt), eftir eina viku, einn mánuð og eftir 2-3 mánuði. Tíminn, nema innan sólarhrings, er ekki aðal málið heldur það að rifja reglulega upp. Hægt er að rifja upp tiltekið efni þrjá daga í röð. Rifja upp samdægurs það sem lært var þann daginn, síðan aftur daginn á eftir, í lok vikunnar og síðan er hægt að fara yfir mánuðinn. Leiðirnar eru margar og það er fyrir hvern og einn að finna það sem gagnast honum best. Þó svo myndin sé ekki listaverk má hæglega sjá að með reglulegum upprifjunum er tvennt sem gerist: Við hverja upprifjun munum við meira af efninu. Við gleymum minna á milli upprifjana. Hvernig er rifjað upp? · Lesa yfir efnið, etv. ½ blaðsíðu, setja hendina yfir textann og taka saman upphátt. · Gera eins með unnin verkefni (spurningar og svör). · Fá einhvern til að hlýða sér yfir. · Skrifa niður aðalatriðin. · Búa til spurningar úr efninu og svara þeim. · Gera hugkort. · Milljón aðrar aðferðir...... |
|
Minni og gleymska |


|
Leikkonur þurfa að vera duglegar að muna. |