|
Námsráðgjöf í Grunnskóla Vestmannaeyja |
|
Heimasíða Helgu Tryggva, náms– og starfsfráðgjafa. |

|
Hafðu samband: |
|
Hamarsskóli 481-2644 Barnaskóli 481-1944 Netfang: helga@vestmannaeyjar.is |
|
Hvítbók hefur reynst áhrifamikil aðferð við hegðunarmótun þar sem tekið er á einangruðum vanda. T.d. að kenna nemandanum að haga sér vel við heimavinnu, koma sér af stað og halda sér við efnið. Samvinna foreldra og kennara er forsenda þess að hvítbókin geri sitt gagn. Ef foreldrar sem þetta lesa halda að þessi aðferð komi til með að gagnast þeirra barni hafið þá samband við námsráðgjafa eða umsjónarkennara. Hvítbók byggir á hugmyndum atferlisfræði þar sem leitast er við að skipta óæskilegri hegðun út fyrir æskilega. Æskileg hegðun er styrkt með því að veita henni athygli. Það að sjá fallega umsögn um hegðun eykur líkur á að nemandinn hegði sér aftur vel við sömu aðstæður. Megintilgangur hvítbókar er að hvetja nemanda til dáða og hjálpa honum við að bæta sjálfsmynd sína. Í bókina eru skráðir atburðir og athafnir nemandans sem foreldrar og kennarar telja æskilega og vilja sjá meira af. Hvítbókin beinir athyglinni að jákvæðum þáttum í hegðun nemandans.
Meginreglur um notkun hvítbókar eru þær að í hana má aðeins skrifa: · Fyrirmæli um það sem nemandinn á að gera frá degi til dags · Staðfestingu þess að hann hafi lokið þeim verkefnum sem fyrir hann voru lögð · Umsögn þar sem minnst er á það sem vel gekk þann daginn, heima og í skólanum
Notkun hvítbókar: · Ein opna er notuð fyir hvern skóladag. · Lína er dregin þvert fyrir miðju opnunnar. · Kennari dagsetur opnuna. · Kennari notar síðuna vinstra megin · Foreldri notar síðna hægra megin · Fyrir ofan strik er fjallað um heimavinnu, kennari skrifar hvað á að læra heima · Fyrir neðan strik skrifa kennari (kennarar) það sem vel gekk í hverjum tíma (eða yfir daginn) · Nemandi fer með hvítbókina heim á hverjum degi · Foreldri kvittar fyrir heimavinnu þegar henni er lokið með því að setja upphafsstafi sína í sömu línu · Fyrir neðan strikið skrifa foreldrar jákvæða umsögn um hegðun barnsins þann daginn.
Mikilvægt er að bæði kennarar og foreldrar líti hvítbókina jákvæðum augum og passi sig á því að hafa öll samskipti við nemandann tengd bókinni jákvæð. T.d. þegar nemandi rétti kennara bókina að morgni að kennari brosi til nemanda þegar hann tekur við bókinni. |
|
Dropinn holar steininn. |
Hvítbók |
|
Samskiptabók þar sem eingöngu má skrifa jákvæðar athugasemdir |