Námsráðgjöf í Grunnskóla Vestmannaeyja

Heimasíða Helgu Tryggva, náms– og starfsfráðgjafa.

Hafðu samband:

Hamarsskóli 481-2644

Barnaskóli 481-1944

Netfang: helga@vestmannaeyjar.is

Skipulag á námi fram að prófum

1. Byrjaðu strax í dag að undirbúa þig.

2. Hafðu á hreinu hvenær hvaða próf er og hvað á að læra.

3. Taktu saman allt námsefni sem er til prófs, útvegaðu þér það sem vantar .
4. Hvar eru
veikleikar þínir, í hverju ertu

      slökust/slakastur? Og hverjir eru styrkleikarnir.

      Skiptu blaði í tvennt með línu og skrifaðu

     styrkleika öðru megin og veikleika hinu megin.-

 

5. Finndu hvar í námsefninu eru verkefni/lesefni sem

hjálpa þér að bæta veikleikana.  Fáðu aðstoð frá kennara,

jafnvel athuga hvort möguleiki er á að fá aukaverkefni.

6. Taktu saman hvað þú þarft að læra í hverju fagi fyrir sig (ekki gleyma því sem þér gengur vel í, þó svo þú leggir áherslu á veikleikana).

 

7. Búðu til tímaáætlun:

· Ákveða tíma fyrir hvern dag. Hvað þarftu mikinn tíma?

· Ákveða hvað á að læra í hverri námslotu.

· Skipta má námslotum niður þannig að í einni er lögð áhersla á veikleika eða að vinna upp, og í þeirri næstu er farið í efni sem gengur vel í.

· Ekki gleyma að rifja upp í lok hverrar námslotu. Þannig festist efnið mun betur í minninu og það er jú það sem skiptir máli, að muna efnið þegar í prófið er komið!

 

Endurskoðaðu tímaáætlunina eftir nokkra daga. Ef þú átt erfitt með að fylgja henni, þarft þú að gera breytingar.

 

Ekki gleyma því að nám er vinna og með því að leggja örlítið meira á sig, gengur fólki betur í starfi. Fólk sem er duglegt í vinnu sér árangur og er ánægt í starfi. Nákvæmlega það sama á við um nám. Þetta má auðveldlega yfirfæra á svo til allt sem fólk fæst við, t.d. íþróttir, tónlist og hvers konar tómstundir.

vinna = árangur = ánægja

 

Mundu að það er enginn sem hefur eins mikil völd í þínu námi og þú sjálf/ur. Það er bara þú sem ræður því hvort þú ert að gera þitt besta –og ég veit þú getur það!

 

 

Hannaðu þinn eigin árangur!

Folded Corner: Styrkl.           Veikl.